Sælar stelpur, takk fyrir síðast!!!
Hér eru uppskriftirnar sem við notuðum um helgina, verði ykkur að góðu
Hádegismatur (þetta er uppskirftin sem ég fékk og átti að vera fyrir ca. 5 J )Taxas two beans 2 bollar saxaður laukur (3-4 laukar, gott að hafa hvítan lauk)
6 hvítlauksrif (pressuð
2 msk. Ólívuolía
Salt eftir smekk
Steikt í potti í ca.8-10 mín.
1 lítið chili fínsaxað
1 bolli saxað kóríender (ca. handfylli eða 1 búnt)
1 bolli söxuð papríka (2 stórar)
½ tsk. Pipar
2 dósir tómatar niðursoðnir
2 dósir vatn, má vera bjór í bland, ekki nauðsynlegt
1 krukka hot salsa sósa (við notuðum milda sósu) Sjóða 10 – 15 mín.
Hakk (við notuðum 1 pakka ca. 450 gr.)
¼ bolli BBQ sósa
Sjóða 10 mín.
Jafnmikið af vatni og tómötum
Sýrður rjómi
Avokadó
Nachos snakk
Rifinn ostur
Sett út í af hverjum og einum eftir smekk. (Við minkuðum laukinn aðeinsog bættum í staðin meiri tómötum)
Heitur pippdrykkur fyrir 4
100 gr Síríus Konsum
5 dl mjólk
2 dl matreiðslurjómi
1 stk. Pipp súkkulaði
Brytjið Siríus súkkulaðið í pott og hellið mjólkinni yfir. Hitið við vægan hita að suðumarki og hrærið vel í á meðan.
Bætið matreiðslurjómanum og Pipp súkkulaðinu út í og hrærið þar til súkkulaðið er bráðnað.
Hellið dyrkknum í glös og setjið rjómatopp efst.
Kvöldmatur:Hveitikökuvafningar 1 stór laukur, smátt saxaður
4 hvítlauskgeirar, pressaðir
4 msk. Ólívuolía
2 sætar kartöflur, smátt rifnar
1 tsk. Þurrkað óreganó
1 ½ cayenne- pipar
2 tsk. kummin
2-3 msk. Fersk steinselja, söxuð
1 krukka soðnar kjúklingabaunir
Salt/pipar
8 hveitipönnukökur
2 dl. Gratinostur
1 dós sýrður rjómi
1 krukka salsasósa
Steikið lauk og hvítlauk við vægan hita í olíu þar til laukurinn verður glær.
Bætið þá við sætum kartöflum, óreganói, cayenne-pipar, kummini og steinselju. Steikið við meðalhita í u.þ.b. 20 mín. og hrærið reglulega í á meðan.
Bætið kjúklingabaunum saman við og kryddið með salti og pipar.
Takið blönduna af pönnunni, skiptið henni jafnt á hveitikökurnar og dreifið 2 matskeiðum af osti á hverja þeirra.
Lokið kökunum með því að brjóta þær saman til helminga. Passið að setja maukið ekki alveg út að brúnum til að hægt sé að klemma saman kantana.
Setjið fylltar hveitikökurnar á heita pönnuna, helst teflon-húðaða en ef ekki þa´bætið smá olíu á pönnuna. Eldið við miðlungshita í u.þ.b. 3 mín á hvorri hlið eða þar til osturinn er bráðnaður. Einnig er hægt að hita kökurnar í ofni.
Berið fram með sýrðum rjóma og salsa sósu, nammi-namm!
Uppskrift úr gestgjafanum 10 tbl. 2007.